2 pakkar risaækjur frá Sælkerafiski | |
ólífuolía | |
3-4 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar | |
1 1/2 tsk reykt paprika | |
1 tsk hunang | |
salt og svartur pipar |
1. | Þerrið risarækjurnar með viskustykki eða bréfþurrkum og látið í skál. Setjið 1 msk af ólífuolíu saman við og kryddið með salti og pipar. |
2. | Hitið pönnu á hæsta hita þar til hún er vel heit. Látið þá hluta af risarækjunum út á pönnuna og hafið bil á milli þeirra. Eldið rækjurnar í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Takið af pönnunni þegar þær eru orðnar bleikar og smá brúnaðar og látið í skál. |
3. | Þegar þið hafið eldað rækjurnar látið 2 msk af ólífuolíu á sömu pönnu (ekki þrífa hana á milli). Steikið hvítlauk í 1 mínútu eða þar til hann hefur brúnast örlítið. Bætið þá reyktri papriku og hunangi saman við. Bætið risarækjunum út á pönnuna og veltið upp úr leginum. |
4. | Smakkið til með salti og pipar og berið fram strax. |
Leave a Reply