Innihaldslýsing

2 pakkar risaækjur frá Sælkerafiski
ólífuolía
3-4 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
1 1/2 tsk reykt paprika
1 tsk hunang
salt og svartur pipar

Leiðbeiningar

1.Þerrið risarækjurnar með viskustykki eða bréfþurrkum og látið í skál. Setjið 1 msk af ólífuolíu saman við og kryddið með salti og pipar.
2.Hitið pönnu á hæsta hita þar til hún er vel heit. Látið þá hluta af risarækjunum út á pönnuna og hafið bil á milli þeirra. Eldið rækjurnar í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Takið af pönnunni þegar þær eru orðnar bleikar og smá brúnaðar og látið í skál.
3.Þegar þið hafið eldað rækjurnar látið 2 msk af ólífuolíu á sömu pönnu (ekki þrífa hana á milli). Steikið hvítlauk í 1 mínútu eða þar til hann hefur brúnast örlítið. Bætið þá reyktri papriku og hunangi saman við. Bætið risarækjunum út á pönnuna og veltið upp úr leginum.
4.Smakkið til með salti og pipar og berið fram strax.
Uppskriftin er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.