Innihaldslýsing

4 sætkartöflur
250 ml kókosmjólk
60 ml hlynsíróp
60 ml kókosmjólk, brædd
1 tsk vanilludropar
1 tsk kanill
1/2 tsk sjávarsalt
1/2 tsk múskat
Hafra- og hnetukurl:
100 g púðursykur
65 g pekanhnetur, saxaðar
50 g OAT haframjöl
40 g OAT haframjöl - fínmalað í matvinnsluvél
3-4 msk kókosolía í föstu formi
Fyrir 10 manns

Leiðbeiningar

1.Stingið í kartöflurnar með gaffli og látið í 200°c heitan ofn í um klukkustund eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Takið úr ofni og kælið. Skerið í tvennt og skafið innanúr þeim og látið í skál.
2.Á meðan blandið pekanhnetum, haframjöli, haframjölshveiti og púðursykri saman í skál. Stappið saman með 3-4 msk af kókosmjólk í föstu formi.
3.Stappið sætu kartöflurnar saman og bætið kókosmjólk, hlynsírópi, vanilludropum, kanil, múskati og salti vel saman.
4.Látið í ofnfast mót og stráið hnetu og hafrablöndunni yfir allt. Bakið í 180°c heitum ofni í 40 mínútur eða þar til efsta lagið er orðið gyll að lit og kartöflumúsin farin að búbbla.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við OTA haframjöl

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.