Þessi súkkulaðikaka er grunnur fyrir allan súkkulaðiköku bakstur á mínu heimili, fullkomin sem skúffukaka, súkkulaðiterta, cupcakes o.fl.
2 bollar Kornax hveiti | |
1 b. sykur | |
1/2 b. púðursykur | |
1/3 b. dökkt kakó | |
1/2 tsk matarsódi | |
2 tsk lyftiduft | |
1 tsk salt | |
2 stór egg | |
1 b. súrmjólk eða AB mjólk | |
3/4 b. jurtaolía | |
2 tsk vanilludropar eða extract | |
1/2 b. sjóðandi vatn | |
.... | |
Tryllingslega gott súkkulaðikrem | |
110g suðusúkkulaði | |
85g smjör | |
250g sigtaður flórsykur | |
2 msk kakó sigtað | |
2 msk mjólk |
Þessi súkkulaðikaka er grunnur fyrir allan súkkulaðiköku bakstur á mínu heimili, fullkomin sem skúffukaka, súkkulaðiterta, cupcakes o.fl.
1. | Hitið ofninn í 175°C |
2. | Sækið stóra skál og sleif |
3. | Setjið öll þurrefni í skálina og hrærið með sleifinni |
4. | Setjið því næst, egg, olíu, súrmjólk og vanilludropa út í og hrærið aðeins saman |
5. | Að lokum setjið þið sjóðandi vatn saman við og hrærið. |
6. | Þessi uppskrift nægir í tvo kringlótta botna ca. 24cm, eina skúffuköku ( í skúffukökuform) og ca. 16 bollakökur. Bakið skúffukökur í ca. 30 mín. Kringlótta botna í 25 mín og bollakökur í ca. 20 mín. Fer alltaf eftir ofnum og gott að fylgjast vel með. |
7. | Þið getið notað allskonar krem, glassúra ofl. |
8. | Súkkulaðikrem aðferð: |
9. | Bræðið saman súkkulaði og smjör í örbylgjunni |
10. | Látið hitann rjúka úr að mestu |
11. | Setjið blönduna í skál og sigtið kakó og flórsykur út í. |
12. | Bætið mjólk varlega saman við og þeytið vel. |
13. | Smyrjið á kalda kökuna og skreytið eftir smekk |
Leave a Reply