
| 1 pakki lítlar tígrisrækjur frá Sælkerafiski | |
| 3 hvítlauksrif | |
| 5 cm engiferrót | |
| 1 rautt chilí | |
| 1 búnt kóríander | |
| safi úr 1 sítrónu | |
| 3 msk sweet chilí sósa, t.d. frá Blue dragon | |
| salt og pipar |
Fyrir 2
| 1. | Takið risarækjurnar úr pakkningunni og takið allan vökva frá. |
| 2. | Pressið hvítlauksrifin, saxið engifer og kóríander smátt. Saxið chilí einnig smátt, takið fræin frá ef þið viljið ekki hafa réttinn bragðmikinn. |
| 3. | Hitið olíu á pönnu og setjið risarækjur og hvítlauk á pönnuna og steikið. Kryddið með salti og pipar. |
| 4. | Eftir um 1 mínútu setjið engifer, chilí og kóríander á pönnuna og steikið þar til rækjurnar eru tilbúnar. |
| 5. | Í lokin, bætið sítrónusafa og sætri chilísósu saman við. |
| 6. | Berið fram með einföldu salati og/eða hrísgrjónum. |
Leave a Reply