Nú eru margir farnir að því að huga að sultugerð. Berin eru nú kannski aðeins seinni á ferðinni en vanarlega, að minnsta kosti hér á höfuðborgarsvæðinu, en þangað til að þau eru tilbúin er við hæfi að gera þessa geggjuðu tómata- og chilí chutney. Mjög einföld í gerð og tilvalin til gjafa.
| 500 g rauðlaukur, skorið í sneiðar | |
| 1 kg tómatar, saxaðir | |
| 4 hvítlauksrif, smátt söxuð | |
| 8-12 rauð chilí, gróflega söxuð | |
| 5 cm engiferbútur, afhýddur og saxaður | |
| 250 g púðursykur | |
| 150 ml rauðvínsedik, t.d. frá Philippo Berio | |
| 5 kardamommur | |
| 1/2 tsk paprikukrydd |
Tómata og chilí chutney
| 1. | Setjið öll hráefnin saman í pott og hitið við meðalhita. Látið malla í klukkustund. |
| 2. | Notið töfrasprota þar til hráefnin hafa blandast ágætlega saman en þó ekki alveg maukað. Það er gott að hafa grófa bita hér og þar. |
| 3. | Hitið að suðu þar til blandan er orðin dökk og glansandi. |
| 4. | Kælið og setjið í krukkur. Geymist í kæli í 6 vikur. |
| 5. | Berið fram með kexi og ostum eða djúpsteiktu papadums. |


Leave a Reply