Vatnsdeigsbollur með Oreo rjóma og Milka súkkulaðiglassúr
Skotheldar vatnsdeigsbollur
100 g smjör
2 dl vatn
2 dl hveiti
2 egg
Látið smjör og vatn saman í pott hitið þar til blandan er byrjuð að sjóða. Takið þá pottinn af hellunni og bætið hveiti saman við og hrærið þar til myndast hefur deigkúla. Setjið deigið í hrærivél og látið á minnsta hraðann, svo mesti hitinn fari úr deiginu. Á meðan látið þið eggin saman í skál og léttþeytið. Hellið þeim svo smá og smá út í deigblönduna á lágum hraða. Notið 2 matskeiðar til að móta ca. 8-10 bollur. Látið á ofnplötu með smjörpappír og setjið inn í ofn á 180°c á blæstri í 20-25 mín og opnið ekki ofninn fyrr en að þeim tíma liðnum.
Oreo fylling
5 dl rjómi, þeyttur
1 box Philadelphia rjómaostur
1 dl púðursykur
1 tsk vanillusykur
10 Oreo kex, mulin
Setjið rjóma, rjómaost, púðursykur og vanillu saman í skál og hrærið saman þar til blandan er orðin létt í sér. Bætið muldu Oreo saman við með sleif. Látið fyllinguna í bolluna.
Milka glassúr
200 g milka súkkulaði
2 msk síróp
2 msk rjómi
Bræðið allt saman í potti. Kælið lítillega og setjið yfir bollurnar.
Leave a Reply