ÞAÐ MÁ RÍFA NIÐUR AFGANGS KJÚKLING EÐA NOTA NAUTAHAKK
EN EF ÞIÐ VILJIÐ NOSTRA VIÐ RÉTTINN ÞÁ ER UPPSKRIFT AÐ
TÆTTUM KJÚKLINGI HÉR
Færslan er unnin í samstarfi við Kötlu
1 flaska vöffludeig frá Kötlu | |
4 dl vatn | |
3 msk olía | |
2 msk smjör | |
tættur kjúklingur (sjá uppskrift í link að neðan) | |
jalapeno í sneiðum | |
1 askja kirsuberjatómatar, skornir í fernt | |
1/2 rauðlaukur, saxaður | |
1/2 búnt vorlaukur, saxaður | |
guagamole | |
ferskt kóríander, saxað | |
sýrður rjómi | |
chilí mayo |
1. | Vöfflur: Setjið vatn, olíu og brætt smjör í vöfflublönduna og hristið vel. Látið flöskuna snúa á hvolf í nokkrar mínútur og hristið aftur vel þar til deigið er orðið kekkjalaust. |
2. | Steikið vöfflurnar á vöfflujárni og látið í lokin á steikingartímanum rifinn ost og jalapenosneiðar yfir. Látið ostinn bráðna (lokið ekki vöfflujárninu) og látið vöffluna á disk og gerið næstu. |
3. | Þegar deigið hefur klárast, stráið kjúklingi yfir vöfflurnar, þá tómötum og lauk, vorlauk og söxuðu kóríander. |
4. | Endið á að setja sósur að eigin vali eins og sýrðan rjóma, guagamole og chili mayo yfir allt. |
ÞAÐ MÁ RÍFA NIÐUR AFGANGS KJÚKLING EÐA NOTA NAUTAHAKK
EN EF ÞIÐ VILJIÐ NOSTRA VIÐ RÉTTINN ÞÁ ER UPPSKRIFT AÐ
TÆTTUM KJÚKLINGI HÉR
Færslan er unnin í samstarfi við Kötlu
Leave a Reply