
| 20 makkarónukökur | |
| 8 danskar kókosbollur | |
| 5 dl rjómi | |
| 2 tsk flórsykur | |
| 1 tsk vanillusykur | |
| 1 askja fersk jarðaber | |
| 150 g rjómasúkkulaði |
Fyrir 4-6
| 1. | Myljið makkarónurnar gróflega og setjið í fat ca 25x15 cm. |
| 2. | Takið kókosbollurnar og ýtið efri hluta þeirra ofan í makkarónurnar og þrýstið létt niður. |
| 3. | Þeytið rjómann ásamt flórsykri og vanillusykri. |
| 4. | Setjið rjómann yfir kókosbollurnar. |
| 5. | Skerið berin niður og setjið yfir rjómann. |
| 6. | Bræðið súkkulaðið yfir vatnbaði, kælið lítillega og hellið síðan yfir allt. |
Leave a Reply