

| 0,5 dl vatn, ylvolgt | |
| 1 bréf (12 g) þurrger | |
| 1 tsk sykur | |
| 0,5 dl vatn, ylvolgt | |
| 2 dl mjólk | |
| 1 tsk salt | |
| 3 msk olía | |
| 600 g hveiti | |
| 1 egg | |
| ½ tsk lyftiduft | |
| 1 ½ dl sólkjarnafræ | |
| 200 g gulrætur, rifnar | |
| egg til penslunar |
Gerir um 12 bollur
| 1. | Setjið vatn í skál og hellið þurrgeri og sykri út í. Látið standa þar til gerið er farið að freyða. |
| 2. | Bætið þá mjólk, olíu, salti, eggi og lyftidufti saman við. |
| 3. | Bætið rifnum gulrótum og sólkjarnafræjum saman við. Hnoðið vel. |
| 4. | Rúllið í pulsu og skerið í 12 hluta. Mótið bollur og setjið á ofnplötu með smjörpappír. Látið hefast í 30 mínútur. |
| 5. | Penslið bollurnar með eggi. Bakið í 200°C heitum ofni í 12 mínútur. |

Leave a Reply