

| 5 hvítlauksrif, söxuð smátt | |
| 2 pakkar af risarækju frá Sælkerafiski | |
| 120 ml tequila | |
| 1/2 búnt ferskt kóríander | |
| salt og pipar |
Einfaldasti réttur í heimi og með þeim betri. Tequila færir risarækjurnar á annað plan og hvítlaukurinn og kóríander gera gott enn betra!
| 1. | Bræðið smjör á pönnu og bætið hvítlauk saman við þar til gylltur á lit. |
| 2. | Setjið risarækjurnar saman við og steikið í 2-3 mínútur. |
| 3. | Hellið tequila saman við og kryddið með kóríander, salti og pipar. Einnig er gott að bæta við chilíflögum. Látið sjóða í 2 mínútur. |
| 4. | Setjið á disk og berið fram með fersku kóríander, salti og pipar. |

Leave a Reply