Það er svo gott að blanda sér smá búst í hádegismat eða sem millimál. Það er auðvitað mjög mikilvægt að það sé næg næring í svona skyrbústi og það er svo sannarlega nóg af henni hér. Dásamlega góða bláberjaskyrið frá Örnu ásamt bláberjum, hindberjum, chiafræjum og möndlusmjöri gerir þetta einfalda búst að sannkallaðri bombu.
1 dós Örnu skyr með botnfylli af bláberjum | |
1 dl frosin bláber | |
1 dl frosin hindber | |
1 msk möndlusmjör | |
2 tsk chia fræ | |
smá sletta vatn eða mjólk eftir smekk |
Það er svo gott að blanda sér smá búst í hádegismat eða sem millimál. Það er auðvitað mjög mikilvægt að það sé næg næring í svona skyrbústi og það er svo sannarlega nóg af henni hér. Dásamlega góða bláberjaskyrið frá Örnu ásamt bláberjum, hindberjum, chiafræjum og möndlusmjöri gerir þetta einfalda búst að sannkallaðri bombu.
1. | Setjið skyr auk annarra innihaldsefna í blandara og blandið þar til kekkjalaust. |
2. | Hellið í glas og dreyfið smá möndlusmjöri og chiafræjum. |
Leave a Reply