Innihaldslýsing

175g mjúkt smjör
80g flórsykur
200g hveiti
4 tsk instant kaffiduft
25g Kakóduft frá Síríus sælkerabakstri
¼ tsk salt
1 stór eggjahvíta
1 tsk vanilludropar
150g Hvítir súkkulaðidropar, rjómasúkkulaði eða Karamellu Doré súkkulaði frá Nóa Síríus
50g ristaðar heslihnetur, saxaðar
Grunnurinn af þessum dásamlegu kökum er uppskrift af klassískum dönskum smjörkökum sem mörg okkar þekkja í ljósri útgáfu. Þessi útgáfa er jafn silkimjúk en með dásamlegu mokkabragði, þar sem kakóið frá Nóa Síríus og kaffi leika aðalhlutverkið. Ég dýfi þeim svo í hvítt súkkulaði en það er einnig himneskt að nota rjómasúkkulaði eða jafnvel Karamellu...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 175°C og setjið bökunarpappír á 2 bökunarplötur. Setjið stóran stjörnustút í sprautupoka, ég notaði 1M frá Wilton.
2.Sigtið hveitið og kakóið og myljið kaffiduftið saman við. Setjið til hliðar.
3.Setjið smjörið í skál og þeytið þar til það er orðið silkimjúkt. Setjið flórsykurinn saman við og hrærið þangað til rétt samblandað en varist að þeyta blönduna, þá renna kökurnar frekar út og missa formið.
4.Bætið eggjahvítunni, salti og vanilludropum saman við. Hrærið þar til deigið er samlagað en stoppið þá. Setjið deigið í sprautupokann, athugið að deigið er mjög stíft en þannig á það að vera.
5.Sprautið kökum á bökunarpappírinn, bakið í 10-12 mín.
6.Takið kökurnar út og kælið alveg á grind. Á meðan kökurnar kólna er gott að rista heslihneturnar. Setjið þær á bökunarplötu og ristið í ofninum við 175°C. Eftir ca. 10 mín er gott að taka þær út. Setja þær beint á viskastykki og nudda skurninni af. Kælið
7.Þegar kökurnar eru orðnar alveg kaldar bræðið þá súkkulaðið yfir vatnsbaði. Dýfið hverri köku langsum í súkkulaðið og stráið strax ristuðum heslihnetum yfir.

Grunnurinn af þessum dásamlegu kökum er uppskrift af klassískum dönskum smjörkökum sem mörg okkar þekkja í ljósri útgáfu. Þessi útgáfa er jafn silkimjúk en með dásamlegu mokkabragði, þar sem kakóið frá Nóa Síríus og kaffi leika aðalhlutverkið. Ég dýfi þeim svo í hvítt súkkulaði en það er einnig himneskt að nota rjómasúkkulaði eða jafnvel Karamellu Doré súkkulaði.  Ristaðar heslihneturnar gefa kökunum svo sérlega gott bragð og úr verður himnesk blanda.

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Nóa Síríus

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.