Innihaldslýsing

Marengsbotnar:
5-6 eggjahvítur við stofuhita (170ml)
250g sykur
2 ½ tsk maizena mjöl
1 ¼ tsk borðedik
1/2 tsk möndludropar
Skraut: Fersk jarðarber, fersk hindber, flórsykur til að dusta yfir og fíngert greni
Það eru til ýmsar skemmtilegar útgáfur af svona marengs jólatrjám eða pavlovutrjám eins og þau eru oft nefnd. Þau eru einfaldari en þau líta út fyrir og eru sérlega falleg á jólaborðinu. Fersk hindberjasósan og berin passa sérlega með vanillurjómanum og sætunni í marengsnum. Möndlukeimurinn af marengsnum gefur smá marsípanbragð sem gerir ótrúlega mikið og...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að aðskilja eggin. Best er að gera eitt egg í einu og setja eina hvítu í einu í hrærivélaskál. Það er sérlega leiðinlegt að fá örðu af eggjarauðu út í allar hvíturnar ef það skyldi gerast.
2.Setjið sykurinn í matvinnsluvél og leyfið henni að vinna í smástund, það er best ef sykurinn er orðinn vel fínn.
3.Byrjið á því að þeyta eggjahvíturnar, þeytið í ca. 2 mín og byrjið þá að setja sykurinn út í í smá skömmtum, 1 msk í einu. Þegar allur sykurinn er kominn út í, þeytið þá áfram þar til allur sykurinn er uppleystur. Setjið þá maizena mjöl og edik saman við og þeytið í smástund þar til allt er samlagað.
4.Teiknið 7 hringi á bökunarplötu. Þvermálið þarf að vera: 15cm, 12cm, 10cm, 8.5cm, 6.5cm, 5cm og 4 cm. Það er í fínu lagi þó málin séu ekki nákvæmlega svona, 1cm til eða frá skiptir engu.
5.Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið hringina fallega á plötuna. Ef það verður afgangur af marengsnum sprautið honum þá bara í það mynstur eða toppa sem ykkur hugnast og geymið til að nota í marengsskál eða skreyta bakkann með. Bakið við 120°C blástur í 1 klst, látið kólna í ofninum, helst yfir nótt.
6.Samsetning:
7.Þegar setja á tréð saman, er best að gera það bara rétt áður en það á að bera það fram. Hafið öll hráefni við höndina þegar þið byrjið.
8.Þeytið rjómann með vanillusykrinum og skolið og skerið jarðarber í frekar stóra bita.
9.Takið fram fallegan kökudisk eða bakka og setjið smá rjómaslettu á hann miðjan og setjið stærsta marengsinn á hann. Smyrjið lagi af rjóma á botninn og setjið söxuð jarðarber og nokkur hindber á rjómann, toppið með hindberjasósu og setjið að síðustu örlítinn rjóma þar yfir.
10.Takið fram grillpinna og stingið honum í miðjan botninn með oddhvassa endann upp. Rennið þá næstu stærð af marengs fyrir neðan á prjóninn, passið að prjóninn fari í miðjan botninn, endurtakið þetta þar til toppurinn er settur efst.
11.Skreytið hliðarnar og bakkann með ferskum berjum, setjið einhverja sæta tjörnu á toppinn og dustið yfir með flórsykri
12.Það gæti vafist fyrir einhverjum hvernig skera á tréð. Langbest er bara að skera í það að ofanverðu og nota skeið á móti. Þetta fer mjög fljótlega í stóra gúmmelaðiklessu á bakkanum og er þá borið fram eins og Eton mess marengs skál.

Það eru til ýmsar skemmtilegar útgáfur af svona marengs jólatrjám eða pavlovutrjám eins og þau eru oft nefnd. Þau eru einfaldari en þau líta út fyrir og eru sérlega falleg á jólaborðinu. Fersk hindberjasósan og berin passa sérlega með vanillurjómanum og sætunni í marengsnum. Möndlukeimurinn af marengsnum gefur smá marsípanbragð sem gerir ótrúlega mikið og bragðið verður aðeins sparilegra fyrir vikið.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við MS Gott í matinn

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.