Það er fátt meira sem öskrar sumar eins og grill lykt í lofti og litríkur og bragðgóður matur á teinunum. Þessi bleikja er ekki að fara svíkja nokkra sálu! Einföld í undirbúningi og bragð sem umvefur hvern einasta bragðlauk. Það góða við það að kaupa fersk hráefni sem ekkert er búið að gera við er að þú sem kokkurinn á heimilinu getur tekið allan heiðurinn og á sama tíma getur lítið farið úrskeiðis ef þú notar góð krydd og olíu.
Hugmyndir að meðlæti :
– Steiktar kartöflur með rósmarín og hvítlauk
– Grillað grænmeti
– Salat
– Grillaður maís
– Grillaður aspas með olíu salt og pipar
Þið getið séð aðferðina í ,,Highlights” á Instagram undir @Matarmenn
Leave a Reply