1 1/2 kjúklingabringa | |
2 msk taco krydd | |
1/4 laukur, saxaður | |
1 dós 36% sýrður rjómi frá Gott í matinn | |
1 poki cheddar ostur frá Gott í matinn | |
8 litlar tortillur | |
Enchilada sósa: | |
1 dós tómatar | |
60 ml vatn | |
2 msk ólífuolía | |
2 tsk eplaedik | |
2 tsk chilíduft | |
2-3 hvítlauksrif | |
1 tsk cumin | |
1/4 tsk chipotle (eða reykt paprika) | |
1 tsk sjávarsalt | |
1 tsk oregano |
Fyrir 2-3
1. | Þerrið kjúklinginn og kryddið með taco kryddi. Eldið í 180°c heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til eldað í gegn. Takið úr ofni og rífið niður með tveimur göfflum. |
2. | Blandið sýrðum rjóma, lauk og 2 dl af cheddar osti saman við kjúklinginn. |
3. | Fyllið vefjurnar með blöndunni og látið í ofnfast mót. |
4. | Látið öll hráefni fyrir sósuna í matvinnsluvél/blandara og maukið. Hellið sósu yfir tortillurnar (magn að eigin smekk). |
5. | Látið í 180°c heitan ofn í um 30 mínútur. Setjið þá cheddar ost yfir og eldið í 10-15 mínútur til viðbótar. |
Leave a Reply