Innihaldslýsing

1 1/2 kjúklingabringa
2 msk taco krydd
1/4 laukur, saxaður
1 dós 36% sýrður rjómi frá Gott í matinn
1 poki cheddar ostur frá Gott í matinn
8 litlar tortillur
Enchilada sósa:
1 dós tómatar
60 ml vatn
2 msk ólífuolía
2 tsk eplaedik
2 tsk chilíduft
2-3 hvítlauksrif
1 tsk cumin
1/4 tsk chipotle (eða reykt paprika)
1 tsk sjávarsalt
1 tsk oregano
Fyrir 2-3

Leiðbeiningar

1.Þerrið kjúklinginn og kryddið með taco kryddi. Eldið í 180°c heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til eldað í gegn. Takið úr ofni og rífið niður með tveimur göfflum.
2.Blandið sýrðum rjóma, lauk og 2 dl af cheddar osti saman við kjúklinginn.
3.Fyllið vefjurnar með blöndunni og látið í ofnfast mót.
4.Látið öll hráefni fyrir sósuna í matvinnsluvél/blandara og maukið. Hellið sósu yfir tortillurnar (magn að eigin smekk).
5.Látið í 180°c heitan ofn í um 30 mínútur. Setjið þá cheddar ost yfir og eldið í 10-15 mínútur til viðbótar.
Færslan er unnin í samstarfi við Gott í matinn

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.