
Valgerður Guðmundsdóttir
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Innnes.

| 400 g blandaðar hnetur frá Rapunzel (hesli, brasilíu, kasjúhnetur og möndlur) | |
| 2 eggjahvítur | |
| 1 tsk vanilludropar | |
| 125 g púðursykur | |
| 2 tsk malaður engifer (kryddið) | |
| ¼ tsk chiliduft | |
| ¼ tsk múskat | |
| 1 tsk kanill |
| 1. | Hitið ofn í 180°c. |
| 2. | Þeytið eggjahvítur saman þar til þær eru nánast stífþeyttar og hrærið þá vanillunni varlega saman við. |
| 3. | Blandið púðursykri og kryddum saman í aðra skál. Hellið hnetunum út í eggjahvíturnar og veltið þeim vel. |
| 4. | Hellið því næst hnetublöndunni út í skálina með sykrinum og blandið vel saman. |
| 5. | Hellið hnetunum á bökunarpappírsklædda plötu og dreifið vel. Bakið í ofni í ca. 20 mín og látið kólna á plötunni. |

Valgerður Guðmundsdóttir
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Innnes.
Leave a Reply