Innihaldslýsing

400 g blandaðar hnetur frá Rapunzel (hesli, brasilíu, kasjúhnetur og möndlur)
2 eggjahvítur
1 tsk vanilludropar
125 g púðursykur
2 tsk malaður engifer (kryddið)
¼ tsk chiliduft
¼ tsk múskat
1 tsk kanill
Tilvalið í jólagjafir eða sem snarl á aðventunni.

Leiðbeiningar

1.Hitið ofn í 180°c.
2.Þeytið eggjahvítur saman þar til þær eru nánast stífþeyttar og hrærið þá vanillunni varlega saman við.
3.Blandið púðursykri og kryddum saman í aðra skál. Hellið hnetunum út í eggjahvíturnar og veltið þeim vel.
4.Hellið því næst hnetublöndunni út í skálina með sykrinum og blandið vel saman.
5.Hellið hnetunum á bökunarpappírsklædda plötu og dreifið vel. Bakið í ofni í ca. 20 mín og látið kólna á plötunni.

Valgerður Guðmundsdóttir

 

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Innnes.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.