Erum við ekki alltaf að leita að einhverjum nýjum uppskriftum með innihalda hakk? Eitthvað svona til að hafa í miðri viku. Þessi réttur er bæði ódýr og einfaldur og allir í fjölskyldunni elska hann. Og það passar jafn vel að hafa rauðkál og baunir með eins og að hafa salat og snittubrauð.
4-5 bökunarkartöflur eða samsvarandi magn af venjulegum gullauga | |
1 stór laukur | |
5-6 gulrætur | |
6 sneiðar beikon | |
5-600g nautahakk, má líka vera blanda af naut og lambi | |
1 msk nautakraftur frá Oscar | |
1 tsk þurrkuð steinselja | |
1 tsk timian | |
1 tsk hvítlauksduft | |
salt og pipar eftir smekk | |
1 msk maizena í smá vatn eða sósujafnari | |
3-4 dl vatn | |
1 dl rjómi frá Örnu | |
1/2 poki hreinn mozzarella frá Örnu | |
1/2 poki mozzarella með pipar frá Örnu |
Erum við ekki alltaf að leita að einhverjum nýjum uppskriftum með innihalda hakk? Eitthvað svona til að hafa í miðri viku. Þessi réttur er bæði ódýr og einfaldur og allir í fjölskyldunni elska hann. Og það passar jafn vel að hafa rauðkál og baunir með eins og að hafa salat og snittubrauð.
1. | Afhýðið kartöflur og skerið í sneiðar. Sjóðið í söltuðu vatni í 10 mín. |
2. | Setjið lauk, gulrætur og beikon í matvinnsluvél og vinnið frekar smátt. Einnig hægt að saxa þetta. Setjið 1 msk olíu á pönnu og steikið þar til laukurinn er glær og grænmetið aðeins byrjað að brúnast. |
3. | Takið laukblönduna af pönnunni og setjið hakkið út á og brúnið. Setjið krydd og laukblöndu saman við og steikið áfram í smástund. |
4. | Setjið kjötkraft yfir og vatn og sjóðið í nokkrar mín. Smakkið til, gæti þurft meira salt og pipar? Setjið sósujafnara eða maizena yfir og hrærið vel í. Setjið rjómann saman við. |
5. | Sigtið kartöflurnar og setjið í eldfast mót. Saltið og piprið aðeins yfir. Setjið þar næst hakkið yfir kartöflurnar og toppið með mozzarella ostinum. |
6. | Bakið við undir og yfirhita í 20 mín. |
7. | Berið fram með salati og snittubrauði. |
Leave a Reply