Innihaldslýsing

600g roðflett og beinhreinsuð ýsa
250g soðnar kartöflur
2 laukar
100g sveppir í sneiðum
3 msk smjör
Salt og pipar eftir smekk
1 dós rjómaostur með karamellíseruðum lauk frá MS
400ml matreiðslurjómi
Ferskur sítrónusafi úr 1/2 sítrónu
2 teningar fiskikraftur
½ tsk laukduft
½ tsk hvítlauksduft
2 tsk þurrkuð steinselja
Rifinn ostur frá MS
Fersk steinselja til skrauts
Það er fátt betra en góðir fiskréttir og þessi er með þeim allra bestu. Gefa þarf sér smá tíma til þess að karamellisera laukinn en þess utan er þetta einfaldur réttur sem hentar sérlega vel í miðri viku eða jafnvel í matarboð og bjóða þá upp á gott hvítvín með. Sósan er algert sælgæti og...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að afhýða laukana, skerið þá í tvennt og svo í þunnar sneiðar. Setjið 1 msk af smjöri á miðstærð af pönnu sem má fara í ofn og setjið laukinn út á pönnuna. Saltið örlítið. Steikið laukinn við miðlungs til vægan hita í 30 mínútur eða þar til hann hefur karmellíserast. Passið vel að brenna ekki laukinn, það þarf smá þolinmæði við þetta en það er alveg þess virði.
2.Takið laukinn af pönnunni og setjið í skál. Setjið 1 msk í viðbót af smjöri. Setjið sveppina út á pönnuna og brúnið vel, kryddið með salti og pipar. Takið sveppina af pönnunni og setjið ofan á laukinn. Setjið 1 msk í viðbót af smjöri út á pönnuna og setjið kartöflurnar út á pönnuna. Steikið þær þar til þær fara að gyllast, kryddið með salti, pipar og smávegis af þurrkaðri steinselju. Þegar þær hafa brúnast aðeins, takið þá pönnuna af hellunni og geymið aðeins.
3.Setjið matreiðslurjómann ásamt rjómaostinum, sítrónusafa og kryddum í pott og bræðið saman, látið malla í 5 mín.
4.Skerið fiskinn í bita og leggið ofan á kartöflurnar. Kryddið fiskinn með salti og pipar.
5.Setijð sveppina fyrst ofan á fiskbitana og svo laukinn. Hellið sósunni yfir og toppið með rifnum osti. Hitið ofninn í 200°C.
6.Setjið pönnuna í ofninn og bakið fiskréttinn í 25 mín.
7.Berið fram með fersku salati, hrísgrjónum og snittubrauði.

Það er fátt betra en góðir fiskréttir og þessi er með þeim allra bestu. Gefa þarf sér smá tíma til þess að karamellisera laukinn en þess utan er þetta einfaldur réttur sem hentar sérlega vel í miðri viku eða jafnvel í matarboð og bjóða þá upp á gott hvítvín með. Sósan er algert sælgæti og passar sérlega vel með flestum fiskréttum. Það er vel hægt að bæta öðru grænmeti við eða jafnvel bæta við öðru sjávarfangi líkt og rækjum eða humri svona spari. Rjómaostarnir frá Gott í matinn eru einstaklega hentugir í sósur líkt og þessa og ég skora á ykkur að prófa hinar týpurnar líka.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við MS – Gott í matinn

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.