Innihaldslýsing

3 stór egg
40g sykur
1 vanillustöng, klofin eftir endilöngu og fræin skafin innan úr
300ml rjómi
200g Doré Karamellusúkkulaði frá Nóa Síríus
150g Rjómasúkkulaði frá Nóa Síríus
80g ristaðar heslihnetur, saxaðar
Á mörgum heimilum er rík hefð fyrir því að útbúa heimagerðan ís sem borinn er svo fram á jólum. Sum halda sig við sína uppskrift sem eðlilega má ekkert hrófla við og ætti kannski heldur ekkert að gera það. Hinsvegar, ef þú ert að leita að nýrri uppskrift eða hefur kannski aldrei gert heimagerðan ís...

Leiðbeiningar

1.Byrijð á því að hita ofninn í 175°C. Setijð heilar heslihnetur á ofnplötu og ristið í ofninum þar til þær verða vel brúnar eða í ca. 15 mín
2.Takið þá hneturnar út og hellið á viskastykki. Nuddið skurnina af með viskastykkinu. Látið kólna alveg og saxið.
3.Aðskiljið eggin. Setjið rauðurnar í skál ásamt sykrinum. Þeytið blönduna vel þar til hún er orðin mjög létt og ljós. Það tekur ca. 5 mín.
4.Þeytið rjómann með vanillunni og setjið í kæli.
5.Saxið 100g af Karamellu Doré súkkulaði og setjið til hliðar. Bræðið yfir vatnsbaði hin 100g af Doré súkkulaðinu ásamt 150g af Rjómasúkkulaði.
6.Stífþeytið eggjahvíturnar og setjið til hliðar.
7.Bætið brædda súkkulaðinu varlega saman við eggjarauðublönduna. Blandið því næst rjómanum saman við með sleikju. Setjið saxaða súkkulaðið og hneturnar út í og blandið varlega saman við með sleikjunni.
8.Blandið stífþeyttum eggjahvítunum varlega saman við með sleikju. Þá er ísblandan tilbúin!
9.Setjið skálina í frysti. Eftir 30 mín opnið frystinn og hrærið upp í ísnum sem er farinn að frjósa. Endurtakið þetta 2-3 í viðbót með hálftíma millibili. Takið þá ílangt kökuform og skafið ísinn í formið. Hyljið formið með álpappír og geymið í frysti þar til á að njóta.

Á mörgum heimilum er rík hefð fyrir því að útbúa heimagerðan ís sem borinn er svo fram á jólum. Sum halda sig við sína uppskrift sem eðlilega má ekkert hrófla við og ætti kannski heldur ekkert að gera það. Hinsvegar, ef þú ert að leita að nýrri uppskrift eða hefur kannski aldrei gert heimagerðan ís áður, þá er þessi uppskrift góð byrjun. Ólíkt mörgum öðrum uppskriftum þá nýti ég hérna líka eggjahvíturnar. Þær gera ísinn loftmeiri, mýkri og auðvitað er hann prótínríkari þannig. Karamellu Doré súkkulaðið frá Nóa Síríus er aðalnúmerið hér með smá aðstoð frá Rjómasúkkulaðinu klassíska. Ristaðar heslihnetur fá að vera með en ég er með algjört æði fyrir þeim þessa dagana og bæti þeim við hvar sem ég get!

Uppskriftin er alls ekki flókin en krefst þess svolítið að leggja allt eldhúsið undir sig en það má alveg svona í aðdraganda jóla.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Nóa Síríus.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.