Innihaldslýsing

250g suðusúkkulaði
120ml rjómi
2 msk Kahlua kaffilíkjör
1 tsk instant kaffiduft
1 msk smjör
250g rjómasúkkulaði
50g suðusúkkulaði
kaffibaunir
Nóa konfekt er algjörlega ómissandi á jólum og hefur verið það í áratugi. Það er alltaf hægt að finna mola sem henta hverjum og einum, sum vilja bara marsípan á meðan aðrir vilja bara sjá fylltu molana. Þrátt fyrir að það sé hægt að kaupa þetta dýrindis konfekt tilbúið er alveg stórkostlegt að gera sitt...

Leiðbeiningar

1.Saxið súkkulaðið og setjið í hitaþolna skál.
2.Setjið rjóma, kaffilíkjör, kaffiduft og smjör saman í lítinn pott og hitið að suðu. Hellið yfir súkkulaðið og látið standa í 1 mín. Hrærið saman og kælið yfir nótt.
3.Takið skálina úr kæli og mótið litlar kúlur. Athugið að það þarf að vinna það svolítið hratt þar sem fyllingin gæti verið fljót að bráðna, raðið kúlunum á plötu klædda bökunarpappír
4.Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði, temprið súkkulaðið. Dýfið hverri kúlu í súkkulaðið, mér finnst best að nota 2 litla gaffla í verkið. Látið sem mest af súkkulaði leka af áður en kúlan er sett á bökunarpappírinn.
5.Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Dreifið óreglulega yfir hverja kúlu og skreytið með einni kaffibaun. Geymist í kæli.

Nóa konfekt er algjörlega ómissandi á jólum og hefur verið það í áratugi. Það er alltaf hægt að finna mola sem henta hverjum og einum, sum vilja bara marsípan á meðan aðrir vilja bara sjá fylltu molana. Þrátt fyrir að það sé hægt að kaupa þetta dýrindis konfekt tilbúið er alveg stórkostlegt að gera sitt eigið konfekt úr Síríus súkkulaðinu. Ég hef lengi verið mikil kaffikona og vel mér yfirleitt eitthvað með kaffibragði. Það lá því beinast við að skella í nokkrar trufflur með kaffi og kahlua líkjör. Ég hjúpa dökkar trufflurnar með rjómasúkkulaðinu og þannig næst dásamlegt jafnvægi.

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Nóa Síríus.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.