Innihaldslýsing

Botnar:
2 eggjahvítur
1 dl sykur
250g kalt marsípan, rifið fínt
Karamellukrem:
200g mjúkt smjör
2 eggjarauður
1 tsk vanilludropar
½ dl þykk karamellusósa, uppskrift fylgir
3 dl flórsykur
  Það er fátt hátíðlegra en sörur. Við þekkjum þessar klassísku með möndlubotninum, súkkulaði og kaffi kreminu og hjúpað dásamlegu suðusúkkulaði. Þær eru sí vinsælar og á mörgum heimilum taka fjölskyldur sig saman og baka þær í sameiningu. Það er smá handavinna að útbúa sörur en útkoman er sannarlega þess virði. Þessar eru tilbrigði við...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 180°C blástur.
2.Þeytið saman eggjahvítur og sykur þar til blandan verður að stífum marengs.
3.Rífið marsípanið saman við og hrærið varlega með sleikju.
4.Setjið marengsinn í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið litlar kökur á bökunarpappírsklædda ofnplötu
5.Gott að er hafa kökurnar í minni kantinum eða um 2 cm í þvermál.
6.Bakið í 13-15 mín, fer eftir ofnum. Þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar gullbrúnar. Kælið vel áður en haldið er áfram.
7.Krem: Setjið smjörið í skál og þeytið vel með handþeytara. Setjið rauðurnar, vanilludropana, karamelluna og flórsykurinn saman við og þeytið áfram. Skafið niður hliðarnar og þeytið áfram í góða stund. Best er að þeyta kremið vandlega. Þegar það er tilbúið veltið því aðeins fram og til baka í skálinni með sleikju til þess að losa aðeins um loftbólurnar sem myndast. Setjið kremið í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið á hverja köku. Magn eftir smekk. Frystið botnana með kreminu.

 

Það er fátt hátíðlegra en sörur. Við þekkjum þessar klassísku með möndlubotninum, súkkulaði og kaffi kreminu og hjúpað dásamlegu suðusúkkulaði. Þær eru sí vinsælar og á mörgum heimilum taka fjölskyldur sig saman og baka þær í sameiningu. Það er smá handavinna að útbúa sörur en útkoman er sannarlega þess virði.

Þessar eru tilbrigði við þessar klassísku en almáttugur minn, þær eru sannarlega ekki síðri. Marsípanbotn í grunninn með unaðslegu karamellukremi og hjúpað með silkimjúku Karamellu Doré súkkulaði frá Nóa Síríus. Karamelluna er hægt að kaupa tilbúna í krukkum í betri verslunum en það er einnig hægt að útbúa hana heima á auðveldan hátt. Uppskrift fylgir ef þið viljið fara þá leið.

Líkt og með þessar klassísku geymast þær best í frysti og gott að bera þær fram hálffrosnar. Þessar verðið þið bara að prófa!

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Nóa Síríus.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.