Innihaldslýsing

Botn:
1 bolli blandaðar hnetur frá Rapunzel
1 1/2 bolli fínt haframjöl frá Rapunzel
1 msk kakó frá Rapunzel
4 msk hlynsíróp frá Rapunzel
3 msk kókosolía frá Rapunzel
15 steinlausar döðlur frá Rapunzel
Karamella:
1 bolli hlynsíróp frá Rapunzel
1 bolli þykki hlutinn af kókosmjólk Rapunzel, dósin látin í kæli og þykki hlutinn tekinn af
1/3 - 1/3 bolli möndlu, kókos og döðlusmjör frá Rapunzel
1/4 tsk Bourbon vanillukorn frá Rapunzel
1/4 tsk sjávarsalt, jafnvel aðeins meira
Púffað kínóa lag:
1/3 bolli möndlu, kókos og döðlusmjör frá Rapunel
1/2 bolli hlynsíróp frá Rapunzel
1/4 tsk vanillukorn frá Rapunzel
75 - 100g púffað kínóa frá Rapunzel
Súkkulaðihjúpur
100g Rice choco súkkulaði frá Rapunzel
40g 70% súkkulaði frá Rapunzel
1 msk kókosolía frá Rapunzel
Rapunzel kom með frábæra nýjung á dögunum, en það er möndlu og kókosmjör með döðlum. Ég hef verið að prófa mig áfram með það og ég verð að segja að það skiptir engu máli í hvað ég set það eða borða eintómt, algjörlega sturlaðar bragðsprengjur og þó bara 3 innihaldsefni. 40% möndlur, 40% kókos og...

Leiðbeiningar

1.Botn:
2.Setjið öll innihaldsefni í matvinnsluvél og vinnið þar til gott deig myndast. Setjið bökunarpappír í ferkantað mót eða kringlótt ef þið eigið ekki passlega stærð. Þjappið deiginu í formið og setjið í kæli eða frysti á meðan þið græjið rest.
3.Karamella:
4.Setjið öll innihaldsefni í pott og hleypið upp suðu, leyfið blöndunni að malla við suðu og sjóðið niður þar til karamellan fer að þykkjast vel.
5.Kínóa púff lag:
6.Blandið öllu saman í skál nema kínóa púffi. Setjið kínóað í skál og hellið blöndunni yfir og hrærið vel saman.
7.Súkkulaðihjúpur:
8.Brjótið súkkulaði í bita, setjið kókosolíu saman við og bræðið saman yfir vatnsbaði eða í örbylgju.
9.Takið botninn úr ísskápnum, dreifið vel af karamellunni yfir botninn. Setjið það magn af kínóablöndunni sem þið teljið passlegt yfir, ég hafði lagið aðeins of þykkt og myndi hafa það aðeins þynnra næst.
10.Samsetning:
11.Setjið aftur karamellu yfir kínóað og toppið með öðru lagi af kínóablöndu. Setjið aðeins meiri karamellu yfir allt og smyrjið bræddu súkkualaðinu yfir allt. Setjið inn í kæli og kæli í að minnsta kosti 2 - 3 klst.
12.Setjið rest af karamellusósunni yfir kökuna - þetta er ríflegt magn af karamellusósu en það gerir ekkert til, hún er góð á allt og klárast fljótt.

Rapunzel kom með frábæra nýjung á dögunum, en það er möndlu og kókosmjör með döðlum. Ég hef verið að prófa mig áfram með það og ég verð að segja að það skiptir engu máli í hvað ég set það eða borða eintómt, algjörlega sturlaðar bragðsprengjur og þó bara 3 innihaldsefni. 40% möndlur, 40% kókos og 20% döðlur. Ekkert annað! Lífrænt og vegan.

Afgangs karamellu er hægt að nota á ýmsa vegu og mun ég sýna ykkur nokkrar útgáfur á næstunni.

 

Stórkostlegt úrval af vegan og lífrænum vörum hjá Rapunzel – Unnið í samtarfi við Innnes, innflytjanda Rapunzel

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.