Innihaldslýsing

3 eggjahvítur af lífrænum eggjum
¼ tsk vanillukorn frá Rapunzel
150g cristallino hrásykur
150g kókosmjöl frá Rapunzel
50g 85% súkkulaði frá Rapunzel
Þessi uppskrift er löngu orðin sígild og ber með sér keim af smávegis nostalgíu. Hér nota ég einungis örfá lífræn hráefni og eru kókosmakkarónurnar einnig glútenlausar. Það er sérlega fljótlegt að útbúa þessar makkarónur og 85% súkkulaðið frá Rapunzel setur alveg punktinn yfir i-ið. Þær geymast vel og því má alveg gera þær með góðum...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 175°C blástur. Klæðið 2 bökunarplötur með bökunarpappír.
2.Setjið eggjahvítur í tandurhreina skál og setjið sykurinn saman við. Þeytið í nokkrar mínútur þar til blandan verður stíf líkt og marengs.
3.Hellið kókosmjölinu saman við ásamt vanillu og blandið varlega saman við með sleikju. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið á plöturnar eða notið 2 teskeiðar til að móta toppa.
4.Bakið í 12-15 mín eða þar til makkarónurnar fara að brúnast. Takið kökurnar út, leyfið þeim að kólna nær alveg á plötunni og færið þær þá yfir á smákökugrind.
5.Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni og dreifið yfir kökurnar.

Þessi uppskrift er löngu orðin sígild og ber með sér keim af smávegis nostalgíu. Hér nota ég einungis örfá lífræn hráefni og eru kókosmakkarónurnar einnig glútenlausar. Það er sérlega fljótlegt að útbúa þessar makkarónur og 85% súkkulaðið frá Rapunzel setur alveg punktinn yfir i-ið. Þær geymast vel og því má alveg gera þær með góðum fyrirvara. Þessar eru algjörlega ómissandi fyrir alla unnendur kókoss

Bio-Product: Bittersweet chocolate 85% HAND IN HAND - Rapunzel Naturkost

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.